Er best að búa í Ölfusi?

Viðskiptaráð Íslands uppfærði nýlega hjá sér vefinn „Hvar er best að búa“ en þar geta einstaklingar borið saman kostnaðinn við að búa í mismunandi sveitarfélögum á landinu. Tilgangur verkefnisins er að auka gagnsæi um skattheimtu, gjöld og skuldsetningu á sveitarstjórnarstiginu.

Á vefnum www.bestadbua.vi.is geta einstaklingar sett inn upplýsingar eins og fjölskyldusamsetningu, tekjur og stærð húsnæðis og fengið út í hvaða sveitarfélagi er hagstæðast fyrir það að búa m.v. gefnar forsendur.

Sem dæmi:

  • Foreldrar og þrjú börn
  • Eitt barn er í daggæslu, eitt í leikskóla og eitt í grunnskóla.
  • Samanlögð laun foreldra: 900.000 kr. fyrir skatt
  • Fjölskyldan býr í 160 fm. húsi í Ölfusi

Þegar þessar upplýsingar eru settar inn í kerfið þá kemur í ljós að Ölfus er í 73. sæti, eða því næst neðsta, yfir þau sveitarfélög þar sem hagstæðast er fyrir þessa fjölskyldu að búa en alls eru sveitarfélögin í landinu 74.

Hafnarfréttir fjallaði einnig um málið árið 2016 og þá voru eftirfarandi forsendur gefnar upp:

  • Foreldrar og þrjú börn
  • Eitt barn er í leikskóla og 2 í grunnskóla.
  • Samanlögð laun foreldra: 600.000 kr. fyrir skatt
  • Fjölskyldan býr í 160 fm. húsi í Ölfusi

Miðað við þessar forsendur þá lenti Ölfusi í 15. sæti árið 2016 en í ár lendir Ölfus í 64. sæti m.v. sömu forsendur.

Athygli er þó vakin á því að þarna er einungis verið að miða við ákveðnar fjárhagslegar forsendur. Þegar einstaklingar ákveða búsetu og meta hvar best er að búa er auðvitað margt annað sem tekið er með í reikninginn eins og gæði þjónustu, staðsetning, atvinnusvæði, íþróttaaðstaða og samfélagið í heild svo eitthvað sé nefnt.