Yfir 20 keppnisgreinar á Unglingalandsmóti UMFÍ í Þorlákshöfn

21. Unglingalandsmót UMFÍ fer fram um verslunarmannahelgina 2. til 5. ágúst. Að þessu sinni fer mótið fram í Þorlákshöfn. Mótshaldarar eru Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK) og Sveitarfélagið Ölfus auk Ungmennafélags Íslands (UMFÍ).

Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, segir meiri fjölbreytni á mótinu nú en nokkru sinni fyrr. Það veiti öllum þátttakendum tækifæri til að prófa fullt af spennandi greinum. Á meðal nýjunganna eru greinar sem gera allri fjölskyldunni kleift að taka þátt og keppa saman.

Í ár er boðið upp á yfir 20 keppnisgreinar. Það eru auðvitað knattspyrna, körfubolti og frjálsar íþróttir. Á meðal nýrra greina nú eru keppni í dorgveiði og sandkastalagerð. Keppni í kökuskreytingum er einnig á dagskránni. Þetta verður í annað sinn sem keppt er í kökuskreytingum á Unglingalandsmóti UMFÍ. Fyrst var keppt í greininni á Egilsstöðum í fyrra og sló hún í gegn.

„Við sáum það á Egilsstöðum að þátttakendur á Unglingalandsmótum vilja fjölbreytni og nýjungar. Við svörum að sjálfsögðu því kalli,“ segir Ómar Bragi og bætir við að greinarnar flestar eru til þess fallnar að vinir og vinkonur geti búið til lið saman. Allir geta skráð sig til leiks.

Fjölbreytt dagskrá og frábær afþreying

Þétt dagskrá er alla mótsdagana og skemmtun á kvöldin þar sem margt af þekktasta tónlistarfólki landsins kemur fram. Þegar hafa boðað komu sína Jói Pé og Króli, Herra Hnetusmjör, Flóni og Huginn, Jón Jónsson og hljómsveitin Between Mountains, Young Karin, Míó Tríó, DJ Dóra Júlía og fleiri.

Vímulaus fjölskylduhátíð sem hefur slegið í gegn

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum en samhliða er boðið upp á fjölbreytta afþreyingu, leiki og skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Búist er við ótrúlegum fjölda barna og ungmenna ásamt fjölskyldum þeirra á mótið. Ekki er skilyrði að vera skráður í ungmenna- eða íþróttafélag til þess að taka þátt á Unglingalandsmóti UMFÍ.

Skráningargjald á Unglingalandsmót UMFÍ er 7.000 krónur og geta allir sem vilja skráð sig til leiks. Greiða þarf gjaldið til að geta klárað skráningu. Aðrir mótsgestir greiða ekkert gjald en geta þó tekið þátt í fjölbreyttri afþreyingu og verkefnum sem boðið er upp á.

Skráning og greiðsla fer í gegnum greiðsluþjónustukerfið NORA.

Ítarlegri upplýsingar eru á www.ulm.is

Tengiliðir mótsins eru:
Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, sími 898 – 1095.
Garðar Geirfinnsson, verkefnastjóri Unglingalandsmóts UMFÍ, sími 846 – 1330.