Eldur í ruslatunnu við Ráðhúsið: Talið að um íkveikju hafi verið að ræða

Eldur kom upp í ruslatunnu við Ráðhús Ölfuss rétt fyrir klukkan eitt í dag. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en Lögreglan á Suðurlandi sér um rannsókn málsins.

Ruslatunnan stóð upp við bygginguna rétt fyrir neðan glugga þannig að talsverð hætta var á að eldur næði að læsa sér í húsið ef til þess kæmi að glerið springi vegna hita.

Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu í Þorlákshöfn brugðust við útkallinu og slökktu eldinn en áður höfðu starfsmenn sveitarfélagsins og vegfarandi slegið verulega á eldinn með fimm slökkvitækjum.

Einhver reykur komst þó inn í bygginguna sem slökkviliðsmenn ræstu með reykblásurum slökkviliðsins.