Bílvelta í Þrengslunum: „Allir geta alltaf gert eitthvað“

Mynd: Brunavarnir Árnessýslu

Bílvelta varð í Þrengslunum um klukkan hálf átta í morgun þegar pallbíll fór út af veginum í mikilli hálku. Brunavarnir Árnessýslu greina frá málinu.

Þar segir að umfang slyssins hafi ekki verið að öllu leiti ljós þar sem innhringjandi stoppaði ekki á vettvangi. Einn maður reyndist vera í bifreiðinni og hlaut hann engin teljandi meiðsl við veltuna.

Slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu frá Þorlákshöfn fóru á vettvang með klippibúnað auk þess sem ákveðin hópur dagvinnumanna frá slökkvistöðinni á Selfossi lögðu af stað. Auk þessa fóru tæki frá lögreglunni á Suðurlandi og tveir sjúkrabílar frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á vettvang.

Brunavarnir Árnessýslu vilja nota tækifærið og brýna fyrir vegfarendum mikilvægi þess að fólk stoppi og kanni málin komi það fyrst að slysavettvangi. „Það er mjög skiljanlegt að fólk geti óttast það sem fyrir augu ber og geti mögulega efast um getu sína til þess að veita hjálp en allir geta alltaf gert eitthvað. Þó ekki sé nema að gefa greinagóða lýsingu til Neyðarlínu 112, svo hægt sé að boða rétt viðbragð í slysið. Stundum þurfa ótrúlega margar hendur að koma að einu slysi og stundum þarf mjög lítið viðbragð. Þurfi lítið viðbragð þá eru ekki eins mörg tæki send út í umferðina á forgangsakstri. Þó forgangsaksturstækjunum sé stjórnað af þrautþjálfuðum og reyndum bílstjórum getur slíkur akstur alltaf skapað ákveðna hættu sem við viljum gjarnan forðast eins og hægt er.“