Leikskólinn Bergheimar hlýtur umhverfisverðlaun Ölfuss

Á myndinni eru Eiríkur Vignir Pálsson formaður Skipulags- byggingar- og umhverfisnefndar Ölfuss, Dagný Erlendsdóttir leikskólastjóri og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra með listaverkin sem Dagný Magnúsdóttir hannaði.
Magnús Hlynur Hreiðarsson tók myndina.

Á sumardaginn fyrsta þann 25. april s.l. voru umhverfisverðlaun Ölfuss veitt við hátíðlega athöfn á Landbúnaðarháskólanum að Reykjum í Ölfusi.

Verðlaunin eru veitt þeim sem sýnt hefur einstakt framtak á sviði umhverfismála. Við valið er horft til þeirra fyrirtækja, stofnana eða einstaklinga sem láta sig umhverfismál varða, hafa mótað sér umhverfisstefnu eða á annan hátt verið til fyrirmyndar hvað varðar umhverfismál.

Tilkoma þessara verðlauna eru að með þeim megi vonandi auka á umhverfisvitund íbúa og fyrirtækja og hvetja þau til að láta sig umhverfismál varða og er það skipulags-, byggingar- og umhverfisnefnd Sveitarfélagsins Ölfus sem velur þann sem hlýtur verðlaunin ár hvert.

Leikskólinn Bergheimar hlutu verðlaunin að þessu sinni fyrir að móta sterka umhverfisvitund hjá okkar mikilvægasta fólki, börnunum.

Leikskólinn hefur nú fengið tvo grænfána og vinnur af þeim þriðja en grænafánaverkefni hefur víðtæk áhrif og taka skólar ábyrga afstöðu í málum sem snerta umhverfið. Leikskólinn hefur innleitt raunhæfar aðgerðir og vinnur þannig á markvissan hátt í átt að sjálfbærni. Þá virkjar leikskólinn nemendur með raunverulegri umhverfisþátttöku eins og að hreinsa umhverfi í bæjarfélaginu og hjálpa þeim að vinna sjálf að endurvinnslu og flokkun svo eitthvað sé nefnt.

Auk þess er umhverfi og lóð leikskólans til fyrirmyndar og öðrum til eftirbreytni. Við mættum öll hafa umhverfissáttmála Leikskólans í huga endar er hann einlægur og gagnlegur.

,,Okkur þykir vænt um jörðina og okkur sjálf“

Leikskólastjórinn Dagný Erlendsdóttir  veitti verðlaununum móttöku en það var Lilja Alfreðsdóttir mennta- og mennigarmálaráðherra sem afhenti þau.

Verðlaunagripina gerði Dagný Magnúsdóttir glerlistakona og eigandi kaffihússins/glerlistasmiðjunnar Hendur í Höfn í Þorlákshöfn.

Að sögn Dagnýjar þá á listaverkið að minna okkur á að við þurfum stöðugt að hlúa að jörðinni okkar

Við þurfum að hlúa að andrúmsloftinu
Við þurfum að hlúa að gróðrinum
Við þurfum að hlúa að hafinu
Við þurfum að hlúa að fjörunni
Við eigum bara þessa einu jörð og við getum ekki án hennar verið, en hún getur án okkar verið.

Verkið er í raun tvö verk, annað þeirra endurspeglar andrúmsloftið, gróðurinn, hafið og fjöruna eins og hún er í sinni tærustu mynd og hitt endurspeglar afleiðingarnar sem sóðaskapur og hugsunarleysi mannfólksins hefur á þessa sömu staði.