Stuðningsmenn styrktu Þórsara um 815 þúsund

Alls hafa safnast 815 þúsund krónur í Facebook leiknum þar sem fjölmargir stuðningsmenn Þórsara í körfubolta styrktu liðið með því að safna „Like-um“ og athugasemdum við Facebook-færslur sínar um Þórs liðið.

Ágúst Örn Grétarsson, gjaldkeri Þórs, var eiginlega orðlaus yfir þessu þegar Hafnarfréttir slóu á þráðinn og sagði að deildin væri afar þakklát öllum þessum frábæru stuðningsmönnun sem liðið á. „Körfuknattleiksdeildin færir öllum bestu þakkir fyrir, þessir peningar munu koma að góðum notum,“ sagði Ágúst Örn.

Gaman er að nefna þá skemmtilegu tilviljun að fyrstu þrjár tölur upphæðarinnar sem safnaðist eru þær sömu og póstnúmer Þorlákshafnar sem sýnir kannski líka þá samheldni sem ríkir í bæjarfélaginu.