Þór og Hamar með sameiginlegt lið í 1. deild kvenna

Körfuknattleiksdeildir Hamars í Hveragerði og Þórs frá Þorlákshöfn hafa ákveðið að ganga til samstarfs í meistaraflokki kvenna og vera með sameiginlegt lið í 1. deild á næsta leiktímabili. Frá þessu er greint á Facebook síðu Þórsara.

Um söguleg tíðindi er að ræða en þetta er í fyrsta sinn sem Þór verður með lið í meistaraflokki kvenna í körfubolta.

„Sameiginlegt lið býr að góðum grunni meistaraflokksliðs Hamars sem leikið hefur í 1. deildinni undanfarin ár. Stefnt er á að efla þann hóp og halda áfram að byggja upp til framtíðar. Liðið mun æfa og keppa bæði í Hveragerði og Þorlákshöfn og er mikil spenna fyrir þessu sameiginlega verkefni,“ segir í tilkynningunni.

Fyrsta verk nýskipaðs meistaraflokksráðs Hamars-Þórs var að ráða þjálfara og mun Hallgrímur Brynjólfsson þjálfa liðið næstu þrjú leiktímabil. Hallgrímur hefur víðtæka þjálfarareynslu en hann þjálfaði meðal annars kvennalið Hamars frá 2012-2015 og kom liðinu þá upp í efstu deild. Hallgrímur hefur lokið þjálfaragráðu FECC frá FIBA auk þess sem hann hefur setið fjölmörg þjálfaranámskeið á vegum KKÍ.