Áform um framleiðslu á 20.000 tonnum af laxi á ári

Í gær undirrituðu Sveitarfélagið Ölfus og Fiskeldi Ölfuss samkomulag um fýsileikakönnun og uppbyggingu áframeldisstöðvar á laxi og vilyrði fyrir lóð. Með samkomulaginu hefur Fiskeldi Ölfuss undirbúning að rekstri landeldisstöðvar sem á að geta framleitt um 20.000 tonn af fullöldum eldislaxi á ári á 200.000 fermetra lóð á svæði í námunda við Þorlákshöfn. Áætluð árleg útflutningsverðmæti gæti legið nærri 22 milljörðum og samhliða verða til ný störf og ný tækifæri.

„Komandi kreppa og versnandi staða hagkerfis okkar leggur ríka ábyrgð á okkur hjá hinu opinbera í því er lítur að nýrri verðmætasköpun. Eins og bent hefur verið á þá verðum við að framleiða okkur út úr kreppunni og þetta verkefni er sannarlega skref í þá átt,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss.

Hann segir að sveitarfélagið hafi nú í nokkur misseri unnið markvisst að því að marka sér sérstöðu hvað varðar umhverfisvæna framleiðslu á matvælum. „Til að byggja undir þá sókn höfum við komið á fót samstarfsvettvangi undir nafninu „Ölfus Cluster“ þar sem fyrirtæki vinna meðal annars saman að kortlagningu tækifæra, grænum lausnum og tilurð hringrásar hagkerfis. Áherslur Fiskeldis Ölfuss falla afar vel að okkar framtíðarsýn og við fögnum því að fá þá til liðs við okkur,“ segir hann.

„Það er líka afar jákvætt fyrir okkur að finna að áherslur okkar í skipulagsmálum hafa gert það að verkum að við getum boðið upp á allar stærðir lóða á einstaklega hagkvæmu verði hér í úthverfi borgarinnar. Þá hefur gengið vel að bæta aðgengi að orku, vatni og fl. Við finnum einnig sterkt að vöxtur hafnarinnar styrkir svæðið verulega. Það er því sóknarhugur í samfélaginu hér.“

Sigurður Ingi Jónsson, verkefnastjóri hjá Fiskeldi Ölfuss segir fyrirtækið hafa metnað til þess að verða leiðandi í fulleldi á laxi á landi og aðstæður við Þorlákshöfn séu einstakar á heimsvísu. „Ölfus er að okkar mati eitt helsta vaxtarsvæði á landinu með skýra sýn á innviðauppbyggingu svo sem hvað varðar stækkun hafnarinnar og áherslu þeirra á mavælaframleiðslu. Þá er til fyrirmyndar sá skilningur sem þar er hvað varðar hagsmuni fyrirtækja eins og okkar. Við horfum til dæmis sterkt til samvinnu innan Ölfus Cluster og teljum allar forsendur til þátttöku í þeim sóknarhug sem við finnum í Ölfusi.“