Brotinn kofi á miðjum vegi við Hlíðarvatn

Um hálf tíu í gærkvöldi fannst brotinn kofi á Suðurstrandarvegi, rétt vestan við Hlíðarvatn í Ölfusi.

Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi segir að líklega hafi kofinn verið í betra ástandi skömmu áður, á palli eða kerru.

Sá eða sú sem kannast við að hafa tapað kofanum eða hefur vitneskju um hver á kofann er beðin/n um að hafa samband við lögregluna á Suðurlandi á Facebook eða í síma 444-2000.