Aukin aksturþjónusta fyrir eldri borgara

Á fundi bæjarráðs Ölfuss þann 4. febrúar síðastliðinn voru samþykkar tillögur þess efnis um að auka við aksturþjónustu við eldri borgara í Þorlákshöfn. Verkefnið, sem er til reynslu næstu fjóra mánuði, hefst í dag 8. febrúar og verður endurmetið að þeim tíma loknum.

Markmiðið með því er að styðja við aldraða íbúa sveitarfélagsins svo þeir geti búið sem lengst á eigin heimili, eins og segir í tilkynningu. Starfsmaður í heimaþjónustu mun sjá um aksturinn sem verður fyrst um sinn í boði frá kl. 12:00 til 13:30, frá mánudegi til fimmtudags.

Þeir einstaklingar sem vilja nýta sér þessa nýju þjónustu er bent á að panta hana með að minnsta kosti dags fyrirvara í síma 483-3614 eða á netfangið asrun@olfus.is.