Skjálftinn haldinn í fyrsta sinn á laugardaginn

Skjálftinn fer fram í í fyrsta sinn í Íþróttamiðstöð Þorlákshafnar laugardaginn 15. maí. Skjálftinn er sunnlensk útgáfa af Skrekk, hæfileikakeppni unglinga í grunnskólum Reykjavíkurborgar sem haldin hefur verið í 30 ár. Í ár fengu allir skólar í Árnessýslu boð um þátttöku og á næsta ári stendur til að bjóða öllum skólum á Suðurlandi þátttöku, allt til Höfn á Hornafirði.

Upphaflega stóð til að Skjálftinn yrði haldinn með fullum sal af áhorfendum í íþróttahúsinu í Þorlákshöfn, en vegna sóttvarnaaðgerða er það ekki hægt og því mæta liðin til Þorlákshafnar, hvert á eftir öðru til að taka upp atriðin sín laugardaginn 15. maí. Þau verða svo sýnd á RÚV 2 daginn eftir, sunnudaginn 16. maí kl. 18.

Verðlaunaafhendingin fer fram „live“ í gegnum instagram síðu Skjálftans þegar Salka Sól, formaður dómnefndar, fer með farandverðlaunagripinn til fyrsta sigurliðs Skjálftans. Upptaka af þeirri stund verður svo áfram aðgengileg á instagram síðu Skjálftans.

Krakkarnir sem hafa unnið síðustu mánuði að því að setja saman atriði hafa staðið sig svo ótrúlega vel og sérstaklega ef horft er til þessa furðutíma heimsfaraldurs. Þau hafa haldið í jákvæðnina þrátt fyrir að þau fái ekki að hitta hin liðin og ekki að sýna atriðin sín fyrir alla samnemendur, foreldra og aðra sem vonast var til að geta boðið í áhorfendasalinn.

Grunnskólinn í Þorlákshöfn verður með glæsilegt atriði sem þessi fríði hópur sem sjá má á meðfylgjandi mynd hefur búið til. Í Skjálftanum er mikil áhersla lögð á það að nemendurnir sjálfir finni hugmynd til að vinna með, þrói hana, æfi og útfæri þannig að hún verði tilbúin á svið. Atriði Skjálftahóps GÞ er mjög áhrifaríkt og hafa nemendurnir lagt á sig gríðarlega mikla vinnu við að setja það saman og æfa og fullvíst að fleiri heldur en færri eru að fara langt út fyrir sinn þægindaramma. Það krefst hugrekkis og eiga þau öll mikið hrós skilið.

Markmiðið með Skjálftanum er að bjóða ungmennum upp á verkefni sem eflir sköpunargáfu, þjálfar nemendur í markvissu langvinnu hópastarfi sem styrkir sjálfsmynd einstaklinga og hefur jákvæð áhrif á skólamenningu. Skjálftinn er samfélagslegt verkefni með sjálfbærni að leiðarljósi, búinn til með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á samfélag og menntun ungmenna. Ása Berglind Hjálmarsdóttir sem sér um Skjálftann, vill koma á framfæri þökkum til skólastjórnenda í Grunnskólanum í Þorlákshöfn sem gáfu hugmyndinni vængi þegar hún ræddi hana við Ólínu snemma á síðasta ári. Ólína talaði fyrir hugmyndinni á fundi skólastjóra grunnskólanna í Árnessýslu þar sem mikill áhugi var á að koma þessu í framkvæmd. Þá vill Ása einnig þakka Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir myndarlegan stuðning og greiðvikni í undirbúning þessa framkvæmdar.

Endilega fylgist með Skjálftanum á facebook og instagram
Skjálftinn á líka heimasíðu þar sem reglulega birtast fréttir af verkefninu og fleira, sjá www.skjalftinn.is