Kvennahlaup ÍSÍ verður fimmtudagskvöldið 6.júní. Hlaupið verður frá íþróttamiðstöðinni og hefst hlaupið klukkan 20:00. Hægt verður að skrá sig í íþróttamiðstöðinni.
Tvær mismunandi vegalengdir eru í boði í ár, 2 km og 4 km. Á milli 17 og 19 í dag, miðvikudag, verður hægt að kaupa kvennahlaups boli. Fyrir börn að tólf ára aldri kosta bolirnir 1000 kr, og 1500 krónur fyrir 13 ára og eldri.
Frítt verður í sund að keppni lokinni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í íþróttamiðstöðinni.