Þrír opnir bátar róa frá Þorlákshöfn

opnirbatar_timinn1949Gamalt og gott að þessu sinni er stórskemmtileg lítil frétt sem birtist á forsíðu Tímans 24. mars(z) árið 1949.

Þrír opnir bátar róa frá Þorlákshöfn í vetur

Frá Þorlákshöfn eru í vetur gerðir út þrír opnir vélbátar og hafa þeir aflað vel, þegar á sjó hefir gefið, eða allt að 16 skippundum í róðri, þegar afli hefir verið mestur. Undanfarna daga hefir verið róið á hverjum degi, nema í fyrra dag, en þá var landlega vegna stirðrar veðráttu.

Í vetur hafa Þorlákshafnarbátarnir orðið að sækja heldur lengra á mið, en til dæmis í fyrra, en þá þurfti oft ekki að sækja nema örstutt til að fá góðan afla. Allir Þorlákshafnarbátarnir róa með net.

Einn aðkomubátur, úr Reykjavík byrjaði róðra frá Þorlákshöfn, en er nú hættur.

Hafnarfréttir

Hafnarfréttir