Lögreglan fann tæki sem hvarf í Þorlákshöfn

logreglan_selfossi01Lögreglumenn höfðu um helgina upp á búnaði tengdum beitningavél sem hvarf í Þorlákshöfn í ágúst síðastliðnum.

Lögreglumennirnir komust á krókótta leið búnaðarins sem leiddi til þess að hann hefur verið endurheimtur.

Verðmæti búnaðarins er á aðra milljón króna væri hann keyptur nýr en þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Selfossi í dag. Ekki er vitað hver var valdur að hvarfi tækjanna.