Hið árlega Þorrablót verður haldið í Þorlákshöfn næstkomandi laugardagskvöld, 8. febrúar.
Blótið fer fram í Versölum eins og undanfarin ár. Húsið opnar klukkan 19 og borðhald hefst síðan klukkutíma síðar.
Maturinn verður í höndum Svarta Sauðsins og mun Jón Haralds sjá um veislustjórn. Hljómsveitin Buff mun síðan halda uppi miklu stuði langt fram eftir nóttu.
Miðasalan hófst í gær og lýkur klukkan 20 í kvöld svo fólk þarf að hafa hraðar hendur til að næla sér í miða á blótið.
Hægt verður að kaupa miða á ballið sér og verða þeir seldir frá klukkan 23 á laugardaginn.