Ellismellir skella í sumarsmelli

tonarogtrix-62Tónar og Trix eru búin að taka upp plötu með landsþekktu tónlistarmönnum og þú getur hjálpað þeim að gefa hana út!

Síðustu mánuðir hafa verið annasamir hjá Tónum og Trix, en eftir að hafa æft stíft síðan í janúar lauk hópurinn við að taka upp plötu um miðjan mars á stormasömum sunnudegi í Þorlákskirkju. Þá hafði kirkjan þjónað því hlutverki að vera stúdíó í tvo daga þar sem allt gekk vonum framar og mikil gleði í hópnum, enda gott að vera í kirkjunni okkar. Í kjölfarið hóf Stefán Örn, upptöku- og hljóðvinnslumaðurinn okkar, vinnu við að hljóðblanda og fínpússa allar upptökur og nú fer platan að verða tilbúin til framleiðslu erlendis. Óhætt er að lofa því að geislaplatan innihaldi allnokkra góða sumarsmelli og muni t.d. henta einstaklega vel í bílnum á leiðinni í útilegur í sumar, þar sem ungir sem aldnir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og geta sungið hástöfum með.

tonarogtrix-157Eins og gefur að skilja er svona verkefni mjög kostnaðarsamt og til þess að auðvelda vinnuna við að fjármagna verkefnið hafa Tónar og Trix sett af stað hópfjármögnun á netinu. Þar er hægt að leggja verkefninu lið með fjárhæð að eigin vali og fá í staðin til dæmis einn eða fleiri miða á tónleika, geisladiska, boð í útgáfupartý eða hreinlega ráða Tóna og Trix í partýið þitt. Í þessu samhengi á aldeilis við að margt smátt gerir eitt stórt og værum við með eindæmum þakklát ef að þið sæuð ykkur fært að leggja verkefninu lið á þennan hátt. Þessi söfnun er þess eðlis að hún er í takmarkaðan tíma og með ákveðna upphæð sem takmark. Ef sú upphæð næst ekki fyrir tilskilin tíma fellur hópfjármögnin niður og allir fá sína upphæð endurgreidda en Tónar og Trix ekkert. Því er mjög mikilvægt að bregðast strax við hafi fólk á annað borð áhuga á því að leggja þessu lið.

Hægt er að kynna sér málið nánar og fylgjast með framvindu söfnunarinnar hér.

Ákveðið hefur verið að halda tvenna útgáfutóneika. Í Þorlákskirkju sunnudaginn 31. maí og í Gamla bíó í Reykjavík þriðjudaginn 2. júní. Þar munu allir hæfileikaríku og frábæru tónlistarmennirnir sem umvefja Tóna og Trix á pötunni koma fram. Gestasöngvarar eru Salka Sól Eyfeld, Unnsteinn Manúel Stefánsson, Jónas Sigurðsson, Kristjana Stefánsdóttir og Sigtryggur Baldursson, betur þekktur sem Bógómil Font. Hljómsveitina skipa Tómas Jónsson á hljómborð, Birgir Steinn á kontrabassa, Óskar Kjartansson á trommur og Sigtryggur Baldursson á slagverki. Einnig kemur Samúel J. Samúelsson fram á básúnu og Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu. Eins og sjá má verður um einstakan viðburð að ræða og því tilefni til að tryggja sér miða á Karolina fund og eiga öruggt sæti á útgáfutónleikunum. Við í Tónum og Trix erum full af eftirvæntingu fyrir áframhaldandi músíkalska ævintýraför og við hlökkum til að hafa ykkur sem flest í því með okkur!

Ása Berglind Hjálmarsdóttir
stjórnandi Tóna og Trix