Tónlistarskóli Árnesinga 60 ára

tonlistarskoli01Í tilefni af 60 ára afmæli Tónlistarskóla Árnesinga 2015 stendur skólinn fyrir fjölbreyttri hátíðardagskrá víðs vegar um sýsluna laugardaginn 18. apríl.

Stefnt er að því að sem allra flestir nemendur komi fram í tilefni hátíðarhaldanna. Dagskráin er mismunandi milli staða, en boðið verður m.a. upp á opið hús, tónlistarflutning, spurningakeppni, kaffi og kökur. Fyrir hádegi verður dagskrá á fimm stöðum.

Kl. 9:30 hefst dagskrá í Flóaskóla og á Flúðum. Í Flóaskóla stendur dagskrá til 12:00, en á þessum tónleikum koma fram nemendur úr Flóahreppi. Á Flúðum sameinast nemendur úr uppsveitum í Félagsheimili Hrunamanna og stendur dagskrá til kl. 12:00.

tonlistarskoli02Kl. 11:00 hefst dagskrá á Stokkseyri, í Hveragerði og í Þorlákshöfn. Dagskráin á Stokkseyri stendur til 12:00, en þar leika nemendur frá Stokkseyri og Eyrarbakka. Í Hveragerði verða hátíðarhöldin í Listasafni Árnesinga, Austurmörk 21 og í Þorlákshöfn í tónlistarskólanum. Dagskrá á þessum tveimur stöðum lýkur kl. 13:00.

Kl. 13:00 hefst dagskrá í húsnæði tónlistarskólans að Eyravegi 9 á Selfossi og stendur til kl. 16:00. Þar ómar tónlist á öllum hæðum þennan tíma.

Á stærstu kennslustöðunum nýta hljómsveitir skólans tækifærið og selja „puttakökur“ í fjáröflunarskyni. Eldri strengjasveit skólans safnar m.a. fyrir ferð til Gdansk í Póllandi í sumar.

Sunnlendingar eru hvattir til að nýta þetta einstaka tækifæri til að fylgjast með blómlegu starfi skólans um alla sýslu. Gestir geta litið við í lengri eða skemmri tíma eftir því sem hentar hverjum og einum. Aðgangur er alls staðar ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.