Eins og flestir íbúar sveitarfélagsins vita þá hefur mikill foksandur borist í óveðrum í vetur úr fjörunni milli Þorlákshafnar og Óseyrarbrúar. Mynduðust við það oft sandskaflar við Óseyrarbrú. Ástæðan fyrir þessum mikla sandburði í vetur er að kamburinn hefur rofnað á mörgum stöðum.
Greint er frá málinu á mbl.is og þar kemur fram að Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, hafi aldrei séð eins mikinn sandburð á þessu svæði og óttast hann áhrif sandfoksins á framtíð golfvallarins og byggðar í Þorlákshöfn.
„Boða á fulltrúa sveitarfélagsins, Landgræðslunnar, Vegagerðarinnar og jafnvel fleiri á samráðsfund þar sem lagt verður á ráðin um hvernig eigi að taka á þessu vandamáli“ segir í frétt Morgunblaðsins.