Það var virkilega gott veður var um helgina í Þorlákshöfn en eftir svona helgi er oft erfitt að mæta til vinnu. Við getum þó huggað okkur við það að á morgun er 17. júní og mun Fimleikadeild Þórs sjá um hátíðarhöldin í Þorlákshöfn þann dag.
Hér að neðan má sjá 17. júní hátíðardagskrána í Þorlákshöfn
9:00 Íslenski fáninn dreginn að húni.
10:30 Skrúðgarðurinn: Leikir og fjör í umsjón fimleikastelpnanna í T1. Allir aldurshópar velkomnir!
13:00 Skrúðganga frá grunnskólanum. Lúðrasveit Þorlákshafnar leiðir gönguna undir stjórn Róberts Darling.
13:30 Hátíðardagskrá í Skrúðgarði
- Lúðrasveit Þorlákshafnar
- Ávarp bæjarfulltrúa
- Hátíðarræða: Aðalsteinn Jóhannsson
- Ávarp fjallkonu
- Gói skemmtir ungum sem öldnum
- Berglind María syngur nokkur lög
- Danshópurinn Ground Zero sýnir dans
14:30-16:30 Kaffisala í Versölum
17:00 Fimleikasprell í íþróttamiðstöð, fjör fyrir alla í umsjón fimleikastelpnanna í T1
Þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga hefur oft verið þekktur fyrir misgott veður en það er ekkert víst að svo verði í ár. Fimleikadeildin vill samt sem áður benda fólki á að fylgjast með með á www.olfus.is eða facebook síðunni „Íbúar í Þorlákshöfn“ hvort hátíðarhöldin verði færð inn vegna veðurs.
Við hjá Hafnarfréttum munum að sjálfsögðu líka fylgjast með og auglýsa breytingar á dagskrá ef einhverjar verða.