Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Sveitarfélagið Ölfus hvetur garðeigendur til að klippa tré sín svo þau hvorki hindri vegfarendur, hylji umferðarskilti né dragi úr götulýsingu.
Garðeigendur eru minntir á að byggingarreglugerð nr. 112/2012 gr. 7.2.2 setur garðeigendum þá skyldu á herðar að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Sjá Byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frá og með 6. júlí 2015 munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Ölfuss fara og klippa þann gróður sem fer út fyrir lóðarmörk og veldur truflun eða óprýði á kostnað lóðarhafa. Nánari upplýsingar veitir umhverfisstjóri í síma 899-0011.
Umhverfisstjóri Ölfuss