„Það þarf að taka Þor­láks­höfn meira inn í mynd­ina“

herjólfurSeinustu ár hefur mikil umræða verið um Landeyjarhöfn og stöðuna sem hún er í. Margir sérfræðingar hafa komið að verkefninu í gegnum árin og einn af þeim er Sævar M. Birgisson skipaverkfræðingur en hann var í starfshópi um hönnun og smíði nýrrar ferju.

„Mín skoðun er ein­fald­lega sú að þetta sé vit­laus nálg­un. Það þarf að taka Þor­láks­höfn meira inn í mynd­ina. Hönnuðir vinna eft­ir því sem fyr­ir þá er lagt. Skoða þarf mál­in mun bet­ur og láta reynsl­una tala. Ég vil ekki dæma Land­eyja­höfn úr leik en hún hef­ur bara sýnt að hún dug­ar ekki allt árið.“ Sagði Sævar í samtali við Morgunblaðið

Að hans mati þá gat hann lítil áhrif haft í starfshópnum þar sem það var búið að ákveða mikið fyrir fram og telur hann að menn þurfi að staldra aðeins við og viðurkenna að mistök hafi verið gerð sem ekki er hægt að bjarga með nýju skipi.

Fréttina má nálgast í heild á vef Morgunblaðsins.