Varðskipið Þór er nú á leið að togskipinu Fróða II ÁR-32, sem statt er suðvestur af Reykjanesi. Fróði fékk veiðarfæri í skrúfuna í nótt og mun Þór draga hann til hafnar þar sem veiðarfærin verða fjarlægð.
Nærstaddur togari tók Fróða II í tog í nótt en dráttarbúnaður slitnaði ítrekað og var því óskað eftir aðstoð varðskips. Áætlað er að varðskipið Þór verði komið á vettvang um kl. 13 í dag. Veðuraðstæður á staðnum eru talsvert erfiðar en vindhraði úr austri er allt að 25 metrar á sekúndu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Fróði þekkir það vel að aðstoða aðra báta en fyrir um fjórum mánuðum birtum við frétt þar sem Fróði aðstoðaði Arnar ÁR-55 þegar bilun kom upp í bátnum. Nú er Fróði þó á hinum endanum og vonandi gengur þetta allt vel fyrir sig.