Í gærkvöldi fór fram lokahóf meistaraflokks Þórs í körfubolta í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn.
Ragnar Nathanealson var valinn besti leikmaður tímabilsins. Halldór Garðar Hermannsson sá efnilegasti, Magnús Breki Þórðarson fékk verðlaun fyrir mestar framfarir og Þorsteinn Már Ragnarsson var besti varnarmaðurinn.
Mikil stemning var í Ráðhúsinu þar sem leikmenn, þjálfarar og aðrir sem starfa í kringum körfuna skemmtu sér konunglega.