Starfsmenn Sveitarfélagsins Ölfuss fluttu í gær stórt og fallegt grenitré frá Selvogsbraut 13 að Egilsbraut 9.
Tréð er Sitkagreni og fékk sveitarfélagið það að gjöf í vor. Í dag stendur þetta veglega tré Mánabrautarmegin við Egilsbrautina og sómar sér líka svona vel á nýja staðnum.
Meðfylgjandi myndir tók starfsmaður sveitarfélagsins við flutninginn í gær.