Í gær fór fram útskrift í Fjölbrautaskóla Suðurlands og var Þorlákshafnardrengurinn Dagbjartur Sebastian Österby Christensen dúx skólans.
Dagbjartur hlaut viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu og að auki fékk hann viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í dönsku, stærðfræði, náttúruvísindagreinum og raungreinum.
Einnig hlaut Stefanía Ásta Davíðsdóttir viðurkenningu fyrir frábæran árangur í íslensku og sögu.
Óskum við þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.