Þessi uppskrift af skonsunum er nákvæmlega sú sama og ég nota fyrir glútenlausu vöfflurnar. Eini munurinn er sá að ég baka þær á pönnukökupönnu en ekki í vöfflujárni. Mér finnst voða gott að gera slatta af skonsum og eitthvað gott salat eins og t.d. rækju- eða túnfisksalat. Þessa samsetningu finnst mér síðan alveg upplagt að taka með í útileguna eða ferðalagið á sumrin.
Glútenlausar skonsur ca. 6 stk
- 1 bolli kasjúhnetur
- 3 egg
- 1/3 bolli möndlumjólk eða t.d. kókosmjólk
- 2 msk hunang
- 3 msk bráðnuð kókosolía
- 3 msk kókoshveiti
- 1/4 tsk vanilla
- 3/4 tsk matarsódi
- 1/4 tsk salt
- Skelltu efstu 5 innihaldsefnunum saman í blandara og blandaðu vel saman. Þú gætir þurft að stoppa og skafa niður á hliðunum svo að allt blandist örugglega vel saman.
- Bættu hinum fjórum hráefnunum saman við og blandaðu áfram þangað til að allt er orðið blandað vel saman.
- Hitaðu pönnukökupönnuna, best er að baka skonsurnar með helluna á hitastigi 6 (9 er hæst hjá mér).
- Settu deigið í aðra skál á meðan þú bíður eftir að pönnukökupannan hitni. Hreinsaðu vel deigið úr blandaranum með sleif svo það fari örugglega ekkert til spillis.
- Þegar pönnukökupannan er orðin heit skalt þú pennsla hana með kókosolíu.
- Settu svo ca 3/4 ausu af deigi á pönnuna og ekki fara langt því að skonsurnar taka enga stund að bakast.
- Pennslaðu svo alltaf pönnuna með kókosolíu á milli, þá festast skonsurnar síður við pönnuna.
Það leynist oft eitthver óþarfi (eins og t.d. aukaefni og sykur) í búðarkeyptum salötum svo að ég geri alltaf mitt salat sjálf. Það er líka bara svo miklu skemmtilegra að gera salatið sitt sjálfur og vita hvað er í því. Þar að auki verður það ferskara og bragðbetra fyrir vikið.
- 150 gr rækjur
- 100 gr majónes (ég nota frá himneskt)
- 3 harðsoðin egg
- 40 g gúrka
- 1/5 tsk paprika
- ¼ tsk karrý
- ¼ tsk salt
- ½ tsk dill
- smá pipar
- Ef að rækjurnar voru frosnar þá skalt þú láta þær þiðna alveg og reyna að ná sem mestu af vatninu úr þeim.
- Skerðu gúrkuna niður í litla örsmáa teninga
- Settu majónesið og kryddin saman í skál og hrærðu vel.
- Settu síðan gúrkuna, rækjurnar og harðsoðnu eggin saman við.
- Hrærðu þar til allt er blandað vel saman.
Þá er bara ekkert annað eftir en að njóta. Verði þér að góðu!
Anna Guðný
Heilsa og vellíðan