Samkvæmt vefsíðunni Hringbraut.is þá gerði Ramminn kauptilboð í kvótann sem Hafnarnes VER seldi HB Granda.
Samkvæmt Hringbraut þá var kvótinn seldur í burtu frá Þorlákshöfn þrátt fyrir eindreginn vilja heimamanna til að kaupa kvótann.
„Grandi greiddi fjóra milljarða fyrir kvótann, sem er jafnvirði hreins hagnaðar fyrirtækisins í átta mánuði. Á síðasta ári var hagnaður Granda sex milljarðar.“