Hafnardagar í Þorlákshöfn hófust í gærkvöldi með listasmiðju í mjölskemmunni við gömlu bræðsluna.
Í dag fimmtudag verður nóg um að vera og munu allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hér að neðan er dagskrá dagsins í dag.
- 17:00-19:00 – Sundlaugarpartý fyrir börn á aldrinum 10-13 ára.
- 18:00 – Allir velkomnir að setja kjöt á grillið við Egilsbraut 9, „Níuna“. Takið klappstóla með.
- 20:00-23:00 – Harmonikkuball á Egilsbraut 9, „Níunni“.
- 20:00-22:00 – Dagskrá fyrir ungmenni við Grunnskólann í Þorlákshöfn. Sápufótbolti fyrir 16 ára og eldri, mannlegt fótboltaspil og fleira.
- 22:00-23:00 – Kósístund í sundlauginni í Þorlákshöfn. Kertaljós og notaleg tónlist í flutningi UniJon.