Ljósin á jólatréinu við Ráðhústorg verða tendruð klukkan 18 í dag, 1. desember.
Jólasveinarnir kíkja í heimsókn, Lúðrasveit Þorlákshafnar spilar, skólakórarnir syngja og boðið verður upp á heitt súkkulaði í boði Kiwanismanna.
Ýmis fyrirtæki verða með sérstaka jólaopnun í tilefni dagsins:
- Viss er opið frá kl. 17-21 og þar verður til sölu ýmist jólahandverk
- Hendur í Höfn verður opið frá kl. 12-22. Léttur matseðill ásamt spennandi jóladrykkjum og 20% afsláttur af allri glervöru. Júlí Heiðar og Þórdís spila og syngja eftir kl 19.
- Café Sól er opið frá kl. 17-21. Jólaglögg og ýmsar aðrar veitingar, lifandi tónlist, kynning og sala á íslensku handverki
- Kompan er opin frá kl. 18-21. Tilboð á vörum og ýmsir aðilar mæta með varning til sölu.
- Meitillinn er með pizzahlaðborð, pizza og gos á 1500 kr.
- Nokkrir aðilar verða með varning til sölu í anddyri ráðhússins frá kl. 16-19.