Hjörtur ráðinn hafnarstjóri

hjortur_jonsson01Nýr hafnarstjóri hefur tekið til starfa í Þorlákshöfn. Hjörtur Bergmann Jónsson, oft kenndur við Læk í Ölfusi, hefur verið ráðinn hafnarstjóri Þorlákshafnar. Hann tekur við stöðunni af Indriða Kristinssyni sem stýrði höfninni til fjölda ára.

Hjörtur var valinn úr hópi mjög frambærilegra umsækjenda en þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins. „Hjörtur hefur víðtæka stjórnunarreynslu, bæði í rekstri fyrirtækja og sem skipstjóri,“

Hann mun sinna daglegum rekstri hafnarinnar auk þess að koma að vinnu við stefnumarkandi verkefni sem hafa það að markmiði að auka umsvif hafnarinnar.