Í gærkvöldi um níuleytið varð alvarlegt flugeldaslys við Ráðhúsið í Þorlákshöfn þar sem unglingspiltur hlaut töluverða áverka í andliti og höndum og var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.
Að sögn varðstjóra í lögreglunni á Suðurlandi var pilturinn að fikta með heimatilbúna flugelda ásamt fleirum. Þegar hann var að kveikja í flugeldinum sprakk hann strax með þessum hörmulegu afleiðingum.