Nú um mánaðarmótin mars/apríl verða tímamót í Landsbankanum í Þorlákshöfn. Ægir E. Hafberg, sem verið hefur útibússtjóri s.l. 20 ár, lætur af störfum, samhliða verður útibúinu breytt í afgreiðslu frá Selfossi.
Valgerður Guðmundsdóttir sem verið hefur þjónustustjóri útibúsins sl. 35 ár mun veita afgreiðslunni forstöðu og aðrir núverandi starfsmenn starfa áfram í afgreiðslunni. Almenn banka– og póstþjónusta verður óbeytt að mestu en fyrirtækjum verður veitt þjónusta frá Selfossi.
Það er von Landsbankans að breyting þessi hafi sem minnst áhrif á almenn dagleg bankaviðskipti á svæðinu og starfsfólk mun hér eftir sem hingað til bjóða viðskiptavinum almenna banka – og póstþjónustu, eins og verið hefur.
Vegna þessara tímamóta verður boðið uppá léttar veitingar í útibúinu milli kl. 14:00 og 16:00 föstudaginn 31. mars nk. Landsbankafólkið í Þorlákshöfn hvetur alla til að koma í útibúið, þiggja veitingar og kveðja „gamla“ útibússtjórann.
Starfsfólk Landsbankans í Þorlákshöfn