Ægismenn gerðu góða ferð á Álftanes í dag þegar þeir unnu góðan sigur á heimamönnum í bikarkeppninni í knattspyrnu, 0-2.
Ægismenn byrjuðu að krafti og skoruðu fyrsta mark leiksins strax á 7. mínútu en þar var að verki Gunnar Bent Helgason.
Það dró síðan ekki til tíðinda fyrr en á lokamínútu venjulegs leiktíma þegar Ægismenn fengu vítaspyrnu en Jonathan Hood tókst ekki að skora. Þegar 6 mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fullkomnaði Gunnar Orri Guðmundsson sigur Ægis og niðurstaðan eins og fyrr segir 0-2.
Ægismenn hafa þá unnið tvo leiki í bikarnum og eru þar með komnir áfram í 32 liða úrslit.
Hér að neðan má sjá fagnaðarlæti Ægismanna eftir leikinn í dag.