Þórsarar hafa samið við leikstjórnandann Óla Ragnar Alexandersson um að leika með liðinu á komandi vetri í Dominos deildinni. Frá þessu er greint á Facebookar-síðu Þórs.
Óli Ragnar er 24 ára gamall og er alinn upp hjá Njarðvík og lék þar undir stjórn Einars Árna, bæði í yngri flokkum og svo á árunum 2011-2014 í meistaraflokki. Hann lék síðast með Snæfelli frá áramótum 2014-2015 og tímabilið 2015-2016 en þá fótbrotnaði hann í leik með félaginu og gekk illa að ná bata svo að hann lék ekki áfram með Snæfell á síðasta vetri vegna meiðsla. Síðara tímabilið með Snæfell skilaði hann 2,2 stigum, 2,9 fráöstum og 4,3 stoðsendingum á leik.
Með komu Óla Ragnars er myndin á leikmannahóp Þórs orðin skýr en þeir Jesse Pellot-Rosa og Snorri Hrafnkelsson höfðu áður gengið til liðs við félagið. Einar Árni Jóhannsson þjálfari Þórs segir í samtali við Fésbókarsíðu Þórs að honum litist mjög vel á leikmannahópinn fyrir komandi vetur og ekki væri ætlunin að bæta frekar við hópinn.
Hópurinn telur 15 stráka og þar af 11 þeirra sem eru uppaldir í Þorlákshöfn og mun félagið einnig tefla fram unglingaflokki á komandi vetri enda sjö af þessum fimmtán leikmönnum enn gjaldgengir í unglingaflokki.