Leikfélag Ölfuss hlaut Listaverðlaun Ölfuss

Listaverðlaun Ölfuss voru veitt 11. ágúst síðastliðinn á Hafnardögum og var það Leikfélag Ölfuss sem hlaut verðlaunin. Leikfélag Ölfuss hefur auðgað listamenningu Ölfuss með skapandi og metnaðarfullu starfi síðastliðin 12 ár og á verðlaunin vel skilið.

Upphaf leikfélagsins var árið 2005 þega nokkrir kraftmiklir einstaklingar tóku sig saman og stofnuðu leikfélag eftir að leiklistarstarf hafði legið í dvala síðan í kringum 1980 þegar Leikfélag Þorlákshafnar hætti störfum.

Síðan þá hafa þau tekið virkan þátt í menningarlífi Ölfuss, sett um leiksýningu árlega ásamt mörgum stuttverkum, haldið námskeið og tekið þátt í ýmsum viðburðum innan sveitarfélagsins.

Glerlistakonan Dagný Magnúsdóttir hjá Hendur í Höfn hannaði verðlaunagripinn.