Fyrr í kvöld komst lið Ölfuss áfram í undanúrslit í Útsvari með sigri á liði Seltjarnarness.
Var þetta virkilega spennandi viðureign en okkar lið, sem var skipað Árnýju, Hannesi og Magnþóru, stóð sig frábærlega og landaði flottum sigri 62-56.
Við hjá Hafnarfréttum óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn.