Auglýst eftir tilnefningum til lista- og menningarverðlauna Ölfuss

Markaðs- og menningarnefnd auglýsir eftir tilnefningum til lista- og menningarverðlauna Ölfuss. Hægt er að tilnefna einstakling eða hóp sem starfað hefur saman á lista- eða menningarsviðinu. Verðlaunin verða veitt á Hafnardögum.

Tilnefningar skulu rökstuddar og þeim fylgja upplýsingar um viðkomandi einstakling eða hóp. Nafn þess sem tilnefnir þarf að fylgja, svo hægt sé að nálgast nánari upplýsingar sé þess þörf.

Tilnefningar sendist til markaðs- og menningarfulltrúa á netfangið annamargret@olfus.is, í síðasta lagi sunnudaginn 15. júlí 2018.

Markaðs- og menningarnefnd.