Þessi sóttu um stöðu sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu og menningarsviðs Ölfuss

Alls sóttu þrettán aðilar um stöðu sviðsstjóra fjármála-, stjórnsýslu og menningarsviðs Ölfuss en fjórir þeirra drógu umsókn sína til baka áður en til birtingar kom. Eftir stóðu því neðangreindir níu umsækjendur. Frá þessu er greint á vef Ölfus.is.

„Hagvangur annast ráðningarferlið og eru viðtöl fyrirhuguð í þessari viku. Vonir standa til þess að hægt verði að ganga frá ráðningu seinni hluta vikunnar.“

Listi yfir umsækjendur:
Gísli Sigurgeirsson, verktaki
Hörður Orri Grettisson, forstöðurmaður hagdeildar
Hrannar Örn Hrannarsson, deildarstjóri
Jóhann Ásgrímur Pálsson, sérfræðingur
Jón Ólafur Gestsson, hagfræðingur
Magnús B. Baldursson, viðskiptastjóri
Sandra Dís Hafþórsdóttir, fjármálastjóri
Sigurður Steinar Ásgeirsson, deildarstjóri innheimtudeildar
Þórólfur Sigurðsson, framkvæmdastjóri