Flugeldum að verðmæti 3 milljónum króna stolið

Nú um hátíðarnar var brotist inn í flugeldagám fyrir utan Kiwanishúsið í Þorlákshöfn þar sem flugeldum að andvirði 3 milljóna króna var stolið. Björgunarsveitin Mannbjörg hefur aðstoðað Kiwanisklúbbinn með söluna í tugi ára og er salan stærsta fjáröflun beggja félaga og því ljóst að um mikið tekjutap er að ræða fyrir báða aðila.

Tjónið er ekki síður tilfinningalegt fyrir meðlimi Ölvers og Mannbjargar sem hafa unnið hörðum höndum allan desembermánuð í sjálfboðavinnu að undirbúningi flugeldasölunnar.

Það var mánudaginn 21.desember sem síðasti mannskapur yfirgaf flugeldana eftir að hafa komið þeim fyrir í læstum lagergám fyrir utan Kiwanishúsið. Þegar komið var að í dag, laugardaginn 26. desember, kom þjófnaðurinn í ljós og biðjum við alla þá sem hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband við lögreglu.