Kveikt verður í áramótabrennunni í Þorlákshöfn á morgun, gamlársdag, klukkan 17:00. Kiwanismenn munu síðan vera með sína árlegu flugeldasýningu.
Eins og undanfarin ár er brennan staðsett fyrir ofan skötubótina, norðanmegin við hús Ísfells á enda Óseyrarbrautar.
Vert er að minna á sóttvarnir og gæta að tveggja metra reglu. Þá má einungis vera með stjörnuljós og blys (þó ekki skotblys) við brennuna. Öll meðferð flugelda og annara skotelda er bönnuð á svæðinu.