Fjöldahjálparstöðvar opnaðar í Þorlákshöfn og Hellisheiðarvirkjun

Fjöldahjálparstöð hefur verið opnuð í Grunnskólanum í Þorlákshöfn en þangað verða fluttir þeir sem eru í bílum sem eru fastir á Þrengslavegi.  Gert er ráð fyrir að allt að 100 manns séu þar í bílum sínum og eru þeir beðnir að halda kyrru fyrir í bílunum þar til björgunarsveitir nálgast þá.

Fyrr í dag þurfti að flytja farþega í 70 manna rútu sem stöðvaðist í Hveradalabrekkunni í fjöldahjálparstöð í Hellisheiðavirkjun.