Styrmir Snær íþróttamaður Ölfuss 2021

Val á Íþróttamanni Ölfuss fór fram í dag í Ráðhúsi Ölfuss og hreppti körfuknattleiksmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson titilinn í ár. Styrmir gat því miður ekki mætt á afhendinguna enda í skóla í Bandaríkjunum og því tók móðir hans við verðlaununum fyrir hans hönd.

Styrmir Snær er fæddur 2001 og er einn efnilegasti körfuboltamaður landsins og Íslandsmeistari með Þór 2021. Styrmir var lykilleikmaður í meistaraflokki Þórs á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í að Íslandsmeistaratitillinn vannst, sem eitt og sér var mikið afrek hjá okkar klúbbi.

Á uppskeruhátíð Körfuknattleikssambands Íslands var Styrmir valinn í úrvalslið Dominosdeildar KKÍ sem er glæsilegt afrek hjá svona ungum leikmanni og að standa á meðal 5 bestu körfuknattleiksmanna Íslands í fullorðinsflokki er mikill heiður. Styrmir var einnig valinn besti ungi leikmaður Íslandsmótsins.

Styrmir hefur verið sterkur leikmaður í yngri flokkum Þórs og lykilleikmaður í unglingalandsliðum KKÍ. Árið 2021 var Styrmir valinn í 20 ára landslið Íslands sem keppti í Eistlandi og auk þess keppti hann með karlalandsliði Íslands í lokaumferð forkeppni að HM 2023 í Eistlandi.

Aðrar tilnefningar til íþróttamanns Ölfuss 2021

  • Silja Haraldsdóttir, tilnefnd fyrir akstursíþróttir.
  • Davíð Arnar Ágústsson, tilnefndur fyrir körfuknattleik.
  • Þorkell Þráinsson, tilnefndur fyrir knattspyrnu.
  • Auður Helga Halldórsdóttir, tilnefnd fyrir fimleika.
  • Katrín Stefánsdóttir, tilnefnd fyrir hestaíþróttir.
  • Glódís Rún Sigurðardóttir, tilnefnd fyrir hestaíþróttir.
  • Védís Huld Sigurðardóttir,  tilnefnd fyrir hestaíþróttir.