Adam Rönnqvist til liðs við Þórsara

Þór Þorlákshöfn hefur samið við sænska bakvörðinn Adam Ronnqvist um að spila með liðinu á komandi leiktíð. Fra þessu greina Þórsarar á Facebook síðu sinni.

Adam hefur spilað megnið af sínum ferli í heimalandinu fyrir BC Lulea og varð meistari með þeim árið 2017.

Adam hefur verið viðloðinn sænska landsliðið undanfarin ár og þess má til gamans geta að hann og Daniel Mortensen spiluðu saman í sænsku deildinni 2019-2020.