Sjö umsóknir bárust í starf sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs Ölfuss sem auglýst var á dögunum en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Eftirtaldir sóttu um stöðuna:
- Anný Ingimarsdóttir – deildarstjóri
- Arna Hrönn Aradóttir – verkefnastjóri
- Jóhanna Margrét Hjartardóttir – menningar og frístundafulltrúi
- Lína Björg Tryggvadóttir – skrifstofustjóri
- Valdimar O. Hermannsson – fv. sveitarstjóri
- Þórunn Jóna Hauksdóttir – forstöðumaður
Hagvangur, í samstarfi við bæjarstjórn, sér um ráðningarferlið og gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna á næstu dögum.