Sex sóttu um stöðu sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs

Sjö umsóknir bárust í starf sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs Ölfuss sem auglýst var á dögunum en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.

Eftirtaldir sóttu um stöðuna:

  • Anný Ingimarsdóttir – deildarstjóri
  • Arna Hrönn Aradóttir – verkefnastjóri
  • Jóhanna Margrét Hjartardóttir – menningar og frístundafulltrúi
  • Lína Björg Tryggvadóttir – skrifstofustjóri
  • Valdimar O. Hermannsson – fv. sveitarstjóri
  • Þórunn Jóna Hauksdóttir – forstöðumaður

Hagvangur, í samstarfi við bæjarstjórn, sér um ráðningarferlið og gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna á næstu dögum.