Emilía Hugrún og Tómas Jónsson flytja jólalög

Hljómlistafélag Ölfuss stendur fyrir jólatónleikaröð á Heima Bístró í Þorlákshöfn alla laugardaga fram að jólum. 

Á fyrstu tónleikunum laugardagskvöldið 2. desember munu söngkonan Emilía Hugrún og Tómas Jónsson, hammondleikari með meiru, flytja sín uppáhalds jólalög. 

Emilía Hugrún sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2022 og er að koma heim í jólafrí frá Danmörku þar sem hún er nú í tónlistarnámi. 
Tómas Jónsson er á meðal fremstu hljómborðsleikara landsins og hefur bæði gefið út eigið efni og leikið með ýmsum hljómsveitum og tónlistarfólki, þar má nefna Röggu Gísla, Sigríði Thorlacius, Sigurð Guðmundson, Hjálma, Jónas Sig, Bríeti, Stuðmenn, Hipsumhaps og hljómsveit hans ADHD. 

Tónleikarnir hefjast kl. 21.00 og er miðaverð aðeins 3500 kr. Miðasala á tix.is