Mótun framtíðar atvinnulífs í Ölfusi – könnun

Íbúum Ölfuss er boðið að taka þátt í að móta framtíð atvinnulífsins í sveitarfélaginu. Atvinnustefnan þarf að eiga rætur í nærumhverfinu þannig að hún endurspegli þarfir, áherslur og væntingar samfélagsins í heild. Frá íbúum vilja bæjaryfirvöld safna saman hugmyndum og fá ólík sjónarhorn upp á yfirborðið. Innlegg þitt skiptir máli varðandi mótun stefnu og forgangsröðun verkefna. Með samvinnu og góðri þátttöku verður svo gerður leiðarvísir að blómlegu atvinnulífi, heilbrigðu umhverfi og sterku samfélagi.

Könnunin verður opin til 25. mars og er bæði hægt að taka hana á íslensku og ensku. Þar sem að um að ræða grunn að mikilvægri stefnumótunarvinnu eru íbúar hvattir til að gefa sér góðan tíma til að svara. Ef einhverjar spurningar vakna þá er velkomið að senda fyrirspurn á netfangið: pmj@olfuscluster.is

Hægt er að nálgast könnunina í gegnum eftirfarandi tengil: https://olfuscluster.is/starfid/atvinnustefna_ibuakonnun/