Kæru íbúar í Ölfusi og í Þorlákshöfn.

Flokkur fólksins verður með íbúafund á Heima Bistro í Þorlákshöfn frá kl. 20:00. annað kvöld eða þann 22. nóvember. Ásthildur Lóa Þórsdóttir þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi mætir á fundinn og svarar öllum spurningum sem upp kunna að koma. Þá mæta einnig til svars, Sigurður Helgi Pálmason sem skipar annað sætið og undirrituð, Elín Íris Fanndal sem skipar það þriðja. Flokkurinn hefur ferðast vítt og breitt um allt kjördæmið og nú er komið að Þorlákshöfn.

Hlökkum til að sjá sem flesta, allir velkomnir. Það er komið að ykkur! Nýsteiktar kleinur og kaffi í boði.

Elín Íris Fanndal frambjóðandi í 3. sæti á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi.