Þökkum íbúum fyrir þátttöku í íbúakosningunni

Við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, viljum þakka íbúum kærlega fyrir þátttökuna í íbúakosningunni sem nú er lokið. Kosið var um hvort heimila ætti starfsemi mölunarverksmiðju rétt utan við Þorlákshöfn, og hefur sú umræða verið mikilvægur liður í lýðræðislegri ákvarðanatöku sveitarfélagsins.

Niðurstaða kosninganna er skýr. Rétt um 30% greiddi því atkvæði að heimilað yrði að reisa mölunarverksmiðju en um 70% lagðist gegn því. Vilji íbúa var því að heimila ekki slíka framkvæmd. Sá vilji er núna vilji okkar og af heilum hug munum við vinna í samræmi við þá afstöðu.

Samhliða ákvörðun um að fela íbúum beint og milliliðalaust vald í þessu máli ákváðum við að halda okkar persónulegu skoðun út af fyrir okkur. Það gerðum við af virðingu fyrir hinu milliðalausa lýðræði. Við erum stolt af því að hafa þannig boðið upp á vettvang þar sem íbúar höfðu tækifæri til að hafa bein áhrif á ákvarðanir sem varða okkar sameiginlega umhverfi og samfélag. Með því að taka þátt sýnduð þið að raddir ykkar skipta máli og mótuðuð beint og milliliðalaust stefnu sveitarfélagsins.

Við erum sérstaklega ánægð með hversu góð kjörsókn var í kosningunni. Alls greiddu rúmlega 65% íbúa atkvæði í kosningunni sem er afar góð þátttaka og langt umfram það sem oft er í kosningum sem þessum. Niðurstaðan endurspeglar skýrt áhuga og ábyrgð íbúa Ölfuss á framtíð byggðarlagsins. Sterk þátttaka tryggði að niðurstaða kosninganna yrði bæði lýðræðisleg og trúverðug.

Ástæða er til að fagna hófstilltri og málefnalegri framkomu almennra íbúa við undirbúning þessara kosninga. Þeir sýndu ábyrgð og báru virðingu fyrir því að skoðanir kunna að vera ólíkar. Því miður féllu þó vanstillt orð sem hafa valdið okkur áhyggjum. Verst var að sjá tilraunir til að draga málin í pólitíska deilu sem voru að okkar mati ekki til þess fallin að gæta hagsmuna samfélagsins. Sérstaklega var dapurlegt að sjá persónulega aðför að fólki sem ekkert hefur sér til saka unnið annað en að vilja sínu samfélagi vel og sýna sínu meðferðarfólki hlýhug. Þar bera örfáir einstaklingar ábyrgð og ósanngjarnt að láta slíkt spilla umræðu og úrvinnslu núna að afloknum vel heppnuðum íbúakosningum.

Við þökkum ykkur aftur fyrir þátttökuna og ykkar framlag til lýðræðislegs samtals í okkar góða sveitarfélagi.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi