Aðalfundur landeldisfyrirtækisins First Water var haldinn síðastliðinn fimmtudag. Á fundinum fóru Örvar Kjærnested stjórnarformaður og Eggert Þór Kristófersson forstjóri yfir rekstur og starfsemi félagsins á síðasta ári, stöðu framkvæmda, fjármögnun og hvað væri framundan í uppbyggingu félagsins í Þorlákshöfn.
Félagið er að byggja upp laxeldi á landi við Laxabraut í Þorlákshöfn og gera áætlanir félagsins ráð fyrir að framleiðsla verði komin í 50.000 tonn árið 2031 og er áætluð heildarfjárfesting um 120 milljarðar króna.
Öflugt uppbyggingarstarf í Þorlákshöfn
Örvar Kjærnested fór yfir skýrslu stjórnar um starfsemina á árinu en First Water framleiddi og seldi um 1.300 tonn af laxi fyrir andvirði 1.241 milljarða á síðasta ári. Framleiðslan lofi mjög góðu þar sem um 94% þeirra afurða sem framleiddar hafa verið séu flokkaðar sem sem hágæða afurðir (e. superior) og hlotið mjög góðar viðtökur hjá erlendum kaupendum.
Félagið hefur fjárfest fyrir um 8 milljarða á árinu á athafnasvæði sínu við Laxabraut í Þorlákshöfn, fyrst og fremst í tönkum og búnaði sem tengist áframeldi en um er að ræða 25 milljón lítra eldistanka og fullkominn vatnshreinsunarbúnað. Gert er ráð fyrir að fyrsta fasa af 6 verði lokið fyrir mitt ár 2026 og að framleiðslugeta í hverjum fasa verði 8.300 tonn af slægðum laxi. Það er á pari við framleiðslugetu stærstu landeldisfyrirtækja bæði í Noregi og Bandaríkjunum.
First Water í forystu í landeldi
Örvar sagði First Water stefna á að vera í forystu í hátækni landeldi hér á landi. Hann sagði stjórnendur félagsins finna fyrir miklum áhuga á erlendum mörkuðum á íslenskum hágæða laxi sem framleiddur er með nýjustu tækni, í góðu samstarfi við nærsamfélagið og með áherslu á ábyrga nýtingu náttúruauðlinda.
Rekstur og fjármögnun á áætlun
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, fór yfir reksturinn á árinu. Heildartekjur félagsins á síðasta ári námu um 1.241 m.kr. og jókst um 274% milli ára. Rekstrarkostnaður á árinu nam 2.908 m.kr. og EBITDA ársins 2024 var neikvæð um 1.659 m.kr. Rekstrartap eftir skatta og fjármagnsliði nam um 1.174 m.kr. samanborið við 1.136 m.kr. árið á undan. Samtals störfuðu 71 starfsmaður hjá félaginu í 65 stöðugildum um síðastliðin áramót.
Eggert fór yfir fjármögnun félagsins en í nóvember á síðasta ári samdi First Water við Arion Banka og Landsbanka um 12 milljarða fjármögnun og í febrúar á þessu ári lauk félagið um 5.700 m.kr hlutafjáraukningu. Fjármögnun félagsins verður áfram eitt af meginverkefnum stjórnenda First Water en félagið samdi á síðasta ári við alþjóðlega fjárfestingabankann Lazard með það að markmiði sækja um 15-22 milljarða króna í nýju hlutafé.
Stefnt að 50.000 tonna framleiðslugetu
Eggert sagði hlutafjáraukninguna í febrúar á þessu ári hafa verið afar mikilvægan áfanga fyrir félagið og gerði því kleift að fjárfesta áfram í uppbyggingu í Þorlákshöfn. Þegar uppbyggingu lýkur verður seiðaeldi, áframeldi, fiskvinnsluhús og aðveitustöð ásamt fleiri innviðum sem nauðsynleg eru til að starfrækja hágæða framleiðslu á laxi. Framleiðslugetan verði um 50 þúsund tonn af hágæða afurðum til útflutnings og áætlaðar tekjur verði um 74 milljarðar króna á ári. Um 300 manns munu starfa hjá félaginu þegar starfsemin í Þorlákshöfn hefur náð fullum afköstum.
Orri Hauksson nýr stjórnarformaður
Ný stjórn var kjörin á fundinum og tóku eftirfarandi sæti í stjórn félagsins.
- Baldvin Valdimarsson
- Björk Þórarinsdóttir
- Eva Bryndís Helgadóttir
- Helen Neely
- Orri Hauksson
- Steinar Helgason
- Örvar Kjærnested
Stjórnin hefur þegar skipt með sér verkum og var Orri Hauksson kjörinn formaður stjórnar.